JÓLA HVAD???
Hvad eru allir ad röfla um jól á bloggunum sínum? Thad eru nefnilega engin jól hjá mér í ár. Helvítis gellan (ég) verdur nefnilega ekkert á pleisinu um jólin, thannig ad thid getid saknad mín. Sjálf sakna ég ekki margs, nema thá helst möndlugjafanna. Thad verdur örugglega undarlegt í Barmahlíd ad thurfa ad afhenda einhverri annarri manneskju möndlugjöfina thann 24. Nóg um thad.
Ég verd ad segja ad ég er afskaplega dugleg vid ad módga thessa Spánverja, en thó af theirra eigin frumkvaedi. Their hugsa nefnilega si svona: "Íslendingur sem býr í augnablikinu á Spáni.... vill slíkur nokkurn tíman snúa til baka í kuldann og volaedid?" og spyrja mig hvort ég hafi hugsad mér ad búa til frambúdar á Íslandi eda hvort ég sé á Spáni til ad vera. Hvernig svarar madur svona bulli? Ég meina, thó ad ég telji ekkert útilokad ad ég endi í Búrkína Fasó eda Galapagoseyjum, thá er planid ekki annad en ad búa heima (reyndar er ég búin ad hóta mömmu og pabba ad búa ALLTAF heima í Barmahlíd). Allavegana, ég svara thví ad ég aetli ad búa á Íslandi í framtídinni, og thá virdast their módgast thessir Spañólar! "Og af hverju ertu thá ad laera spaensku?" er oft vidkvaedid. Ég hef líka verid spurd hvort ég sé hér til ad leita mér ad eiginmanni. Ég meina, enginn spyr Spánverja sem er á Íslandi eda Englandi eda hvar sem er hvort hann aetli virkilega ad snúa aftur til lands hins lata fólks og hundaskítsins!! Allavegana. Ekkert kemur mér á óvart lengur, enda er nordrid ekki hátt á áhugamálalista Spánverjanna (og theim er naer ad módgast!).
Annars er ferdalag framundan og allt í hers höndum. Berglind, ég og thaer írsku erum ad gera daudaleit ad hostali EINHVERS STADAR á Spáni. Thad virdist nefnilega allt vera fullt allstadar! Af hverju thurfa allir ad vera ad ferdast thessa helgi, kannski bara til ad taka hostalplássin frá okkur? Granada var upphaflega stefnan, en nú er ljóst ad thar er allt fullt. Thetta verdur spennandi. Heyrdu, ég haetti bullinu og fer ad leita áfram á netinu! Tack och hej!
posted by Hildur at 10:46 AM