Jæja þá er maður búinn í prófunum þessa önnina, þó svo að törninni sé ekki lokið enn.
Enn á ég eftir að skrifa ritgerð um opinbera starfsmenn og lýðræði. En maður gerir það
nú í ró og næði yfir tebolla og kleinu inni á skrifborði. Það er semsagt búið
með andvökunætur, skjálfta, koffíndrykkju og almennan andlegan doða í bili. Ekki svo
að skilja að ég sjái ekki eftir að hafa ekki verið duglegri í vetur. Reyndar held ég
að ég falli "bara" í einu prófi ólíkt mörgum öðrum sem ég hef talað við. Ég sem hef
enga reynslu af sumarprófum og stefni á útskrift næsta vor. En well. Svo bregðast
krosstré sem önnur tré. Ég ætla ekki að fara í nána útlistun á Júróveislunni að svo
stöddu, ég er búin að gefa forsmekkinn að því og mun halda áfram eftir morgundaginn,
þegar Jónsi heillar Evrópubúa. Já já eigum við ekki bara að hafa trú á stráknum?
posted by Hildur at 11:34 AM
Siguen ganando los del este!
Sagði hún Beth hin spænska í fyrra eftir úrslit Evróvisjón, og ég verð að taka undir
með henni. Forkeppnin var snilld... en hvað er málið með að velja heimsk lög eins
og Króatíu og Kýpur?? Halló?
Bestu lögin voru Úkraína, Lettland og Serbía Svartfjallaland. En jæja.
Ég get endalaust blaðrað um Evróvisjón en ég hætti í bili.
posted by Hildur at 9:04 PM
Júróveislan
Samnorrænu Júróvisjónþættirnir eru tær snilld. Eiki Hauks er algerlega að gera sig.
Mitt uppáhalds Júróvisjónlag ever er Gleðibankinn, og ég hef horft á hverja einustu
keppni síðan ég var 6 ára gömul og geri aðrir betur. En eitt þykir mér athugavert
við þessa samnorrænu þætti. Þessir spekingar þora ekki að setja sig upp á móti
löndum hinna. Finnski gaurinn er sá eini sem hefur þorað að gefa öðrum Norðurlöndum
gulan. Hinir eru ekkert nema sleikjan og klappa hver öðrum á bakið. Eða fyndust þessu
fólki íslenska eða norska lagið vera annað en crap ef þau væru framlög Makedóníu
og Ísraels? Ég hefði ekki hikað við að gefa lögunum kjemperött og þar með rústað
öllu Norrænu samstarfi og viðskiptaböndum. Er ekki Ísland hvort eð er ríki í
Bandaríkjunum, svona óopinberlega?
posted by Hildur at 12:20 AM