Þetta var reyndar djók hérna síðast...
posted by Hildur at 2:40 PM
StórfréttÉg hef verið valin í hóp 25 yngismeyja sem keppa um "piparsvein Íslands" á Skjá einum. Ég ætla að sjálfssögðu að sigra og hreppa hnossið, af einberum keppnisskap. En það getur ekki klikkað af því að þeir hjá Skjá einum lofuðu mér að viðkomandi væri fallegur maður sem eldar og þrífur.
Hittumst á djamminu næstu helgi, við getum litið á það sem nokkurs konar gæsapartý.
posted by Hildur at 3:13 PM
Ég er búin að vera reglulega pirruð og önug síðustu daga. Ég ber við álagi í vinnunni (kreisí) og langdegisleiða. Ég fæ nefnilega ekki skammdegisleiða heldur langdegisleiða. Það Á að vera dimmt á nóttunni og þess vegna er ég minna hress á sumrin (fyrir utan það að maður þarf að "vinna" á sumrin, sem er einber þrældómur).
En þá er ekki svo að skilja að ég sé að upplagi skaphundur og þverhaus. Venjulega er ég eins og sólin sjálf og það er gott að ég skuli einstaka sinnum taka pirrings- og fúllyndisköst því að það ætti að minna fólk á hvað ég er annars skapgóð, og kenna því að meta það. Ehaggi?
Annars lýsi ég stuðningi við þátt Sylvíu Nóttar. Mér sýnist þetta útpældur húmor og unga konan á hrós skilið fyrir að þora að vera með svona asnaleguhúmor. Maður er alltaf að sjá karlmenn gera það og það er alveg sama hversu asnalegir og aulalegir þeir eru, fólk fyrirgefur það samt. En um leið og stelpur gera svoleiðis er eins og fólk segi: "En glötuð -hvað er hún að vilja upp á dekk?"
Ég get reyndar ekki sagt annað en að maður fær leið á sama karakternum í langan tíma, ég hefði viljað sjá svona 3-4 stelpur í viðbót í þessum þætti.
posted by Hildur at 9:31 PM