Já Hemmi minn!
Skólinn er loksins byrjadur aftur og er thad nú vel. Ekki thad ad thetta sé eitthvad skemmtilegasti skóli í heiminum. Thad er frekar langt frá thví. En madur hittir thó fólkid reglulega aftur. Annars má nú med sanni segja ad vid íslensku stúlkurnar erum duglegar ad hneyksla fólk af ödrum löndum. Sérstaklega á djamminu. Hafidi séd nýjasta Christinu Aguileru myndbandi Dirty? Tja thannig dönsum vid á Gabönnu vid hvert taekifaeri. Thannig ad fólk heldur sjálfsagt ad á Íslandi séu ekkert nema eftirhermur af Christinu Aguileru á Íslandi. Fattar thad ekki ad thad erum bara vid?¿
Annars er ég ad fara ad dusta rykid af fótboltahaefileikum mínum á fimmtudaginn thegar ég, Sally frá Englandi og thrjár af theim írsku erum ad fara ad keppa vid spaenska stráka. Já vid skulum aldeilis sýna theim hvar Gunni keypti kókid... nei ég meina hvar Davíd keypti ölid. Upphaflega átti titill leiksins ad vera Españoles contra Irlandesas en ég og Sally stöndum ekki undir thví, thá kom hugmyndin med Spañólar gegn Bretlandseyjum en ég eydilegg thad. Naesta hugmynd var brún augu gegn bláeygdum en thá hefdum ég og einn theirra spaensku thurft ad skiptast á lidum. Thannig ad ég held ad lokahugmyndin sé eyjaskeggjar gegn Íberíu.
Fyrir utan thetta aetla ég ad vera menningarleg í fyrsta skipti í langan tíma á laugardaginn og heimsaekja ádur óthekkta borg, Segoviu. Aetli madur maeti ekki bara thunnur thví thad er erasmus partý fyrst á Gabönnu.
Nóg um thad, adios!!
posted by Hildur at 3:05 PM