Doggygizzle televizzle
Ónefnd mannvitsbrekka, við skulum bara kalla hana Ásdísi Björnsdóttur svona að gamni, var einhvern tíman að furða sig á því að ég ætlaði í stjórnmálafræði af því að ég er Snoop Dogg áhangandi. En Snoop Dogg er geðveikt pólitískur! Sáuði hann í Jay Leno um daginn? Hann var mjög pólitískur og með speisuð gleraugu. Þannig ætla ég að verða!
posted by Hildur at 3:59 PM

Your Heart is Yellow
What Color is Your Heart? brought to you by Quizilla
Gult hjarta... ég er með hlandhjarta. Og mér finnst svolítið ósanngjarnt að efast um hvort ég sé komin af gelgjuskeiði... en svona próf ljúga víst ekki.
posted by Hildur at 3:45 PM
Það er aldeilis að það þarf lítið til að gleðja lítið hjarta. Það sannaðist í gær þegar ég var fengin til að taka þátt í umræðuhóp á vegum Gallup. Hljómar frekar pirrandi eftir langan vinnudag, en í ljós kom að ég átti bara að ræða um áfenga gosdrykki ásamt jafnöldrum mínum og drekka kók og borða kex. Svo fór fram smökkun á þessum gosdrykkjum og í laun fengum við sixpack af Smirnoff Ice og 2500kr úttekt í Smáralind. Ekki slæmt tímakaup þar. Já ég er svona eins og Pollýanna, einföld sál sem auðvelt er að gera til geðs.
posted by Hildur at 1:05 PM