*Þjóðhátíðardagurinn var þó nokkuð hátíðlegur hér á bæ. Ég fór í skrúðgöngu
í fylgd norskrar lúðrasveitar með ásamt systurdætrum mínum. Það var rokna
stuð og ég er soldill svona skrúðgöngujaxl. Brúðubíllinn var hins vegar
ekki alveg að gera sig.
*Frændur vorir Ítalir eru ekki alveg að gera sig á EM. Hvað er málið? Láta
einhverjar danskar baunir og sænskar kjötbollur gera jafntefli við sig? Er
það hægt? *vaffanculo*
*Úlíngarnir hópnum mínum í Vinnuskólanum vilja að ég stofni útvarpsþátt sem
á að heita "Hilla E og Ghettóblasterinn"
*Sólborg vinkona mín segist vera búin að finna hinn fullkomna eiginmann fyrir
mig. Hún er nú ein af þessum harðgiftu sem ég tala um hér neðar, þannig að ég
tók þessu með sæmilegri ró. Sá sem hún er búinn að finna núna virðist hins
vegar vera vandfundinn. Hann er víst með BA í stjórnmálafræði, og alltaf að
lenda á spítala í kjölfar þess að fara úr hnélið eða lenda í öðrum óskundanum.
"Langar þig ekki að hitta hann sem fyrst?" spurði Sólborg æst.
"Tja, það hljómar nú óneitanlega freistandi að fá loksins að hitta þennan
tvíburabróður minn sem var aðskilinn frá mér við fæðingu" varð mér á orði.
Góða helgi!
posted by Hildur at 8:56 PM
Það er svo gaman að vinna við að skipa úlíngum fyrir. Ég vakna alltaf
hress og glöð í bragði, spennt fyrir því að fá að takast á við verkefni
dagsins, sem eru að mæta á tiltekið svæði og úthluta þessum blessunum
verkefni. Ganga svo á milli og vinna með þeim og minna þau á hvað
það er nú frábært að reita arfa, slá og gróðursetja með yndislegum
úlíngum. Það skemmtilegasta er þó að sjá viðbrögð þeirra við því
þegar ég hef sleppt þeim úr augsýn og geng svo aftur í áttina að þeim,
og þau taka smá viðbragð frá því að sitja og tjilla og fara svo að
hamast við vinnuna. Það er líka kapítuli útaf fyrir sig hvað þau (nei
fyrirgefðu, ÞÆR) hafa mikinn áhuga á að vita ævisögu mína. Ég get ekki
sagt annað en "don't get me started"; annars færi dagurinn nefnilega í
það að rifja upp allar partýsögur lífs míns hingað til, sérstaklega þær
al-neyðarlegustu. Væri samt óneitanlega stuð.
posted by Hildur at 5:13 PM