Ég skil ekki af hverju það er sagt:
Sá vægir sem vitið hefur meira -hví skyldi sá vægja sem hefur málsstaðinn sín megin?
Að minnsta kosti vægi ég aldrei.
Heimskur hlær að sjálfs síns fyndni -hví skyldi maður segja brandara sem manni finnast
ekkert skemmtilegir sjálfir? Ég get oft ekki sagt brandara fyrir hlátri.
Heimskur er gjarnan höfuðstór -meikar ekki sens, ég er með frekar stórt höfuð.
posted by Hildur at 10:10 PM
Verslunarmannaeyjahelgin
Helgi mikils djammrugls og lekkerheita er að baki. Nei ég fór ekki á þjóðhátíð, ég hékk
í siðmenningunni, the city of Reykjavík og kíkti á lífið. Ég nenni samt ekkert að blogga
um það. Mér finnast leiðinleg svona blogg sem ganga út á hreinar dagbókarfærslur, samt
án allra leyndarmálanna. Eyðufyllingarbloggið mitt hér að neðan er einmitt ádeila á slíka
tilhneigingu.
En jæja ég sé sjálfssagt flísina í augum nágungans en ekki bjálkann í mínu eigin. Sjálf er
ég nefnilega mislatur og enn misvitrari bloggari, þannig að ég ætla að brjóta þetta upp og
semja nútímaljóð, en eins og allir vita getur hver sem er samið nútímaljóð, enda eru þau
ekkert nema óstuðluð og órímuð rugl.
Garðslangan
Græn og sver sveigist hún um garðinn
hlykkjast milli beða og stétta
Ég finn að friðurinn færist yfir mig...
posted by Hildur at 2:18 PM