Scooter... back in da house!!
Samkvæmt Fókus í dag fékk Aðalsteinn nokkur Magnússon sér FM957 tattú á upphandlegginn í skiptum fyrir miða á Skútertónleika. Skrambans vesen að hafa ekki krækt í þennan díl! Ha, eitt svona myndar tattú, og maður hefði getað fengið að fara að sjá goðið án endurgjalds! Geðveikt.
Ég kannski reyni að plögga svona díl við útvarp Kántríbæ ef Nancy Sinatra spilar á klakanum, on the Klake... nú eða við Létt 96.7 ef Celine mætir.
Góða helgi!
posted by Hildur at 9:23 PM
Ég þakka Hallgerði Hlöðvers og Stefáni Gríms fyrir kommentin við síðasta innleggi. Mér dettur auðvitað ekki í hug í eina sekúndu að að þessum kommentum standi ein og sama manneskjan, jafnvel úr röðum skyldmenna minna. Í samyrkjubúinu mínu er gott að vera og allir eru með fléttur í handakrikunum.
Ef einhver nennir að skrifa fyrir mig ritgerð um Evrópusamrunann væri það vel þegið. Góður penni og snjall fræðimaður óskast til verksins. Ég get að vísu ekki greitt í peningum en ég er til í að þvo bíla eða labba með hund í skiptum fyrir greiðann. Nema að vísu ekki rauða bíla af því að mér finnast þeir ljótir og ekki stóra hunda af því að ég er hrædd við þá.
posted by Hildur at 7:23 PM