Þing Unga Fólksins, þar sem ég mun bjarga heiminum um helgina, á víst að snúast um að komast að samkomulagi og forðast dægurþras. Hvað er málið með það? Ég hélt við værum búin að klappa SUSurum og VinstriGræningjum alveg nógu oft á axlirnar en hvað um það. Sumir vilja meina að þetta sé fyrst og fremst fyllerí. Sjáum til með það.
Annars er ég með nokkrar ályktanir í eigin nafni sem ég heimta að aðrir styðji. Þær eru:
1. Að Ísland gerist ríki í Bandaríkjunum
2. Að malbikað verði yfir Kópavoginn
3. Að kókaín verði selt í öllum sjoppum
4. Að Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu verði gerð að ríkiskirkju í stað hinnar Lútersk-evangelísku
5. Ástþór í forsetann
posted by Hildur at 11:33 AM
Það er gott að vera léttsteiktur en þau ykkar sem viljið verða enn steiktari, skellið ykkur endilega á málstofu í HÍ á morgun sem ber yfirskriftina: "Ferningsform yfir Dedekind bauga með kennitölu 2" Nánari lýsing á þeirri málstofu er sem hér segir:
"Til eru þekktar aðferðir til að lýsa Witt grúpu Dedindkind baugs ef 2 er eining í baugnum. Í fyrirlestrinum verður sagt frá tilraunum til að eiga við tilfellið þegar 2 = 0 í baugnum. Byrjað verður á að lýsa því hvernig Witt grúpa baugs er skilgreind. Auk þess verða ýmsar niðurstöður um Witt grúpur kroppa með kennitölu 2 rifjaðar upp."
Já það eru miklar mannvitsbrekkur sem hafa vit á Wittgrúpum og Dedekindum. Spurning um að skella sér bara í Raunvísindadeildina, hvað finnst ykkur?
Annars er ég að fara að skella mér á þing núna um helgina, verð fulltrúi Ungra Jafnaðarmanna á svokölluðu ungliðaþingi. Einu áhyggjurnar sem ég hef er að mig sárvantar róttækar skoðanir. Hvernig fer maður að því að vera róttækur miðjumoðari? Hmmm..
Annars verð ég nú bara upp á punt held ég.
posted by Hildur at 7:56 PM
Grænar bólurHafið þið horft á raunveruleikaþáttinn "the Swan"? Ég sá hann um daginn (var það kannski í gær... nei ég man ekki) og ég verð að segja að þessi þáttur er til að gráta yfir. Hann inniheldur blöndu af kapítalisma, útlits- og æskudýrkun, efnishyggju, Öskubusku, Disney og amerískri tilfinningasemi. Ó já.
Ekki það að ég sé neitt á móti lýtaaðgerðum, við erum öll hégómleg að vissu marki og veljum fyrir okkur sjálf. Þessi þáttur gengur hins vegar út á að aumingja konurnar hafa þjáðst meira eða minna alla sína ævi fyrir að uppfylla ekki kröfur samfélagsins um "æskilegt útlit", og svo vinna þær sem breytast mest.
Má ég fara að gubba núna?
Hildur has left the building
posted by Hildur at 10:20 AM