Ég fór í gær á skemmtilegt reúníon í gær, en það er svo skrítið að ég hitti ekki þessa krakka sem voru með mér í MR á sínum tíma. Það sendu allir eldri systkini sín í staðinn fyrir sig, en þau líta alveg eins út nema eru komin með háskólagráður í hinum og þessum greinum og alvöru djobb, auk þess sem sum eru orðin fjölskyldufólk. Sjálf mætti ég bara með sjálfa mig, en þó með bros- og áhyggjuhrukkur ólíkt því sem ég var fyrir 5 árum.
En þetta er merkilegt í ljósi þess að um daginn fór pabbi í 30 ára reúníon hjá útskriftaárgangi '75 úr MT, og hann hitti heldur enga af þessum krökkum sem voru með honum í skóla, heldur bara foreldra þeirra!
posted by Hildur at 5:39 PM
Ég er að fara í reúníjón í kvöld með fyrrum fellow MR nördum. Ég er mikið að spá í því hvort ég eigi að djamma eins rækilega og ég gerði alltaf þá (og geri reyndar enn á stundum) og skemmta mér eins og það sé enginn morgundagur, eða hvort ég eigi að sýna fólki að nú, 5 árum eftir útskrift, er ég orðin þroskaður einstaklingur, vandur að virðingu sinni og dannaður hófdrykkjumaður?
Þetta er mér mikið hjartans mál.
posted by Hildur at 10:13 AM
Það er annaðhvort skita eða harðlífi í þessu jarðlífi
posted by Hildur at 12:55 PM
Ég verð að segja að mér finnst ógeðslega kúl að mótmæla, steyta hnefum og ganga með kröfuspjöld. Mig langar að fara að taka þátt í slíku, þótt ég verði að viðurkenna að fyrir utan það að ég er til dæmis ekkert á móti Kárahnjúkavirkjun þá myndi ég örugglega aldrei leggja á mig að sofa í tjaldi til að mótmæla umhverfisspjöllum. Svona er ég lítil prinsipp manneskja. Ég er að spá í hverju ég ætti að mótmæla, -ekki það að það sé ekki nóg til fyrir mig, stjórnarandstæðinginn... en mig vantar eitthvað sem er sannanlega þess virði að slást við lögguna fyrir. Hugmyndir? Línuívilnun, skólagjöld í ríkisháskólum, gjaldtaka af sjúklingum í heilbrigðiskerfinu, eða bara almennt helvítis kapítalisminn?
posted by Hildur at 5:12 PM