Í gær tókum við Kamilla systir og Hildur Fr okkur til og klæddum okkur ósómasamlega, ég límdi á mig træbal-drekatattúi, við sturtuðum í okkur rósavíni og fórum á hallærislegustu búllur bæjarins. Ástæðan var sú að við ákváðum að "þykjast vera hvítt hyski (white trash)". Ég veit -hallærislegt og leim.
En í raun var þetta dálítið eins og 120 kílóa fólk að setja inn á sig púða til að þykjast vera 140 kíló og gera lítið að þeim sem eru það. Því að þótt engin okkar búi í hjólhýsi, þá má geta þess að kvöldið endaði á sama veg hjá mér eins og stundum áður.-Skjálfandi eins og hrísla heima hjá mér, í fósturstellingunni og kastandi upp allri þeirri fæðu sem ég hefði innbyrt frá frumbernsku. Jamm ég er hvítt hyski.
Annars má geta þess að Jennifer Lopez þykist alltaf vera aftur orðin fátæk og flutt aftur í Bronx í sínum myndböndum. Kannski er bara kúl að þykjast vera fátækari en maður er. J-Lo er líka ágæt, maður þarf bara að kynnast henni.
posted by Hildur at 9:47 PM
Ég VERÐ að fara að byrja að reykja. Ég er búin að lofa því á svo mörgum vígstöðvum að ég get ekki svikið það mikið lengur. Svo held ég að reykpásur séu mest kúl samkomur sem ég get tekið þátt í. Fyrir vikið verð ég líka ógeðslega kúl sjálf. Er ekki til einhver svona "Byrjaðu að reykja" hjálparsími?
posted by Hildur at 6:44 PM
Þetta kallast að vera með attitjút
posted by Hildur at 8:50 AM
Ég á mér markmið. Í framtíðinni ætla ég að gerast svo merkileg að rata á síður Frjálsrar Verslunar um tekjur valins hóps Íslendinga. Stei tjúnd!
posted by Hildur at 9:50 AM