Í dag ætla ég að setja inn tilvitnanir í lög Skítamórals. Miklar mannvitsbrekkur eru þetta:
"Fljúgðu áfram, út í geiminn. Finndu þann sem, skapar heiminn. Einfalt en þó satt, já þú reyna mátt. Finndu þann sem skapar heiminn. Líttu upp og finndu þig á ný."
"Ef allt er stopp, bara ekki neitt. Önnur hugsun getur öllu breytt. Nýjar leiðir taka við. Finnum aftur innri frið."
"Stjörnuþoka, þúsund ljósár. Loðnir dvergar dvelja allt um kring. Geimálfar í grímubúning, gefa mér einn undarlegan hring."
"Sálin tóm að innan, líkaminn svo nakinn. Vantar eitthvað til að mynda heil. Spurningarnar bíða, svörin ekki komin, tíminn getur gefið það sem þarf."
"Geðveikt gólfið, ertu vakandi. Hamast, hylltur, ertu vakandi. Brennur hitinn, ertu vakandi. Flæðir svitinn, ertu vakandi."
"
Ég bíð spenntur eftir næsta dag því ég fíla að spila þetta lag "
"Hann er já þéttsetinn hér kanturinn, hann starir limskufullur lýðurinn. Er eitthvað til sem hér er rétt og satt. Ég velti sífellt fyrir mér."
"Það líður inn hér ungur maður og segist tilbúinn í allt, hann virðist dreyminn svolítið hraður hann er á öðru hundraði."
"Svo sárafáar vikurnar, eigum megin sólar. Það er líf í görðunum og mér. Þá sjaldan góðar blikurnar og ljósir sumarkjólar. Fáein víf á heilanum ég hef."
-Þessi og mörg fleiri fleyg orð má nálgast
hérGóða helgi
posted by Hildur at 6:03 PM
Stundum er ég pólitískari en andskotinn sjálfur, en af og til get ég ekki varist tilhugsuninni um að það sé nákvæmlega sama hvaða fæðingarhálfvitar það séu sem stjórna landinu. Það er hvert pakkið öðru líkt. Æ þið vitið.
Auk þess er ég farin að standa mig að því að vera hrokafyllri með hverjum deginum. Á alltaf bágara með að skilja hvaða ömurlegu sjónarmið liggja að baki skoðunum öndverðum við mínar. Eða mér finnst þetta ekki í alvöru, en það er stundum svolítið stutt í þetta "attitjút" hjá mér og ég er ekki stolt af því.
Ég myndi heldur ekki vilja rökræða við mig. Kannski um hluti eins og landbúnaðar- og sjávarútvegsmál sem ég hef eiginlega engar ástríðufullar skoðanir á. Hver sem er getur komið með sínar absúrt hugmyndir á þeim sviðum og ég segi bara "já er það", eða mótmæli í smá stund og enda svo á að segja "æi fokk it ma'r fyrst þetta skiptir þig svona miklu máli". En varðandi málefni sem ég hef miklar skoðanir á, það held ég að sé ekki gaman að rökræða við mig um. Ég þarf ALLTAF að eiga síðasta orðið og eftir það fæ ég gjarnan smá samviskubit.
Þannig að niðurstaðan af þessu öllu saman er: Pólitíkin er asnaleg og verum ekkert að pæla í þessu rugli!
posted by Hildur at 10:25 PM
Ég var að fá VISA yfirlitið mitt sem er ekki frásögur færandi nema Éééésús Pjetur hvað ég eyði miklu. Ég er endemis eyðslukló. Ef sparnaður er dyggð er ég stórsyndari. En það er samt ósanngjarnt af því að hugsið ykkur hvernig hagkerfið væri ef allir væru alltaf að spara! Ég býð ekki í það.
posted by Hildur at 5:52 PM
Á sínum tíma var ég að spá í að fara í sálfræði en mikið djöfull er ég fegin að ég sleppti því. Ég get með stolti sagt að ég botna ekkert í mannssálinni, og reyndar geng ég svo langt að skilja ekki upp né niður í öllum þessum
greiningum sem fólk kann að fá hjá sálfræðingum. Því hvað er "ofvirkt" fólk annað en óþekktarormar? Og "skert starfsorka" -kallast það ekki bara leti?
posted by Hildur at 5:43 PM