Ég verð að segja að ég er orðin langeyg eftir mánaðarmótunum. Ég á núna þrjúhundruð kall til þess að lifa fram að mánaðarmótum og það er ekkert í ísskápnum mínum, nema reyndar ónýt jógúrt og tveir bjórar. Sem betur fer er ég í vinnu og á foreldra í sama bæjarfélagi því að annars myndi ég svelta heilu hungri. Verst er samt að geta ekki keypt sér neitt skemmtilegt. Mig vantar svo mikið af fatnaði og snyrtivörum og mig langar á djammið. Ég HAAAATA að vera blönk. Hata hata hata hata!
Svo þegar ég fæ loksins aur þá verð ég strax að punga út fyrir tveimur stöðumælasektum. Það er samt EKKI mér að kenna að ég neyddist í bæði skiptin til að leggja upp á gangstétt. Svona eru þrengslin í miðbænum og Bílastæðasjóður gildnar ört af þeim sökum. Þetta er ríkisrekinn kapítalismi góðir hálsar. Dæmi hver fyrir sig.
posted by Hildur at 8:18 PM
Dæmisaga úr hvunndagslífinuÉg, systir mín og vinkona okkar fórum út í bakarí og sögðum við afgreiðslustúlkuna: "Við ætlum að fá niðursneitt fransbrauð" og hún svaraði: "Viljið þið hafa það niðursneitt?" og við svöruðum "já takk við viljum hafa það niðursneitt". Þá tók hún fransbrauðhleif úr hillunni og spurði: "Á ég að skera það niður fyrir ykkur?"
posted by Hildur at 9:21 PM
Ég get víst ekki verið krati lengur af því að það var verið að trúa því fyrir mér að Stalín hefði drepið fleiri en Hitler...
posted by Hildur at 6:24 PM
Ég var að elda pulsur fyrir dætur næstelstu systur minnar áðan, en þar sem ég er afskaplega léleg húsmóðir neyddist ég til þess hringja alla leið til Danmerkur í elstu systur mína, sem er gift þriggja barna móðir og altmuligtkvinde í Árósum, af því að ég hafði ekki guðmund um hversu lengi maður syði pulsur. Ekki vissi ég að maður væri bara að hita þær þar sem þær væru þegar soðnar.
Ég veit að ég er léleg húsmóðir en málið er að einstæðingurinn er afskaplega óhagkvæm rekstrareining. Alvöru matur kostar marga peninga og kemur sjaldnast í nógu litlum pakkningum. Svo kem ég heim á kvöldin að jafnaði eftir 13 tíma fjarveru, hafandi verið ýmist í tímum í HÍ, vinnu, rækt og/eða pólitískum sellufundum úti um allan bæ þannig að það síðasta sem mér dettur í hug er að skella einhverju gómsætu á pönnuna. Nei ég hef sko afsökun fyrir því að elda aldrei.
posted by Hildur at 7:31 PM
Hjálpi mér allir heilagir...Ég var í ræktinni í gær sem er ekki frásögur færandi nema að ég heyrði svona teknóútgáfu af laginu Wild boys með Duran Duran. Og þá í fyrsta skipti fattaði ég að lagið hét í raun Wild boys en ekki White boys. Ég hef alltaf sungið
White boys -white boys -never chose this way
White boys -white boys- never close your eyes
osfrv
posted by Hildur at 9:07 AM